Umsókn um íslenskt vegabréf
Þeir sem ekki hafa tækifæri til að sækja um íslenskt vegabréf á Íslandi geta sótt um vegabréf í sendiráði Íslands í Berlín. Einnig er hægt að sækja um vegabréf í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló, Lundúnum og í Washington.
Íslenskir ríkisborgarar þurfa að hafa meðferðis greiðslukvittun vegna útgáfunnar og gamla vegabréfið eða önnur skilríki. Æskilegt er að viðkomandi panti tíma hjá sendiráðinu. Vegabréfin verða afgreidd innan tveggja vikna.
Ræðismönnum er heimilt að framlengja vegabréf um eitt ár frá þeim degi sem vegabréfið rann út. Í brýnustu neyð geta ræðismenn gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt um vegabréf í sendiráði eða á Íslandi. Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.
Gjaldskrá
18 - 66 ára EUR
Almennt gjald: 56
Fyrir skyndiútgáfu: 110
Fyrir neyðarvegabréf: 28
Ökuskírteini: 43
Aðrir EUR
Almennt gjald: 21
Fyrir skyndiútgáfu: 41
Fyrir neyðarvegabréf: 10
Ökuskírteini: 12
Greiðsla vegna neyðarútgáfu vegabréfs þarf að berast áður en vegabréfið er gefið út á eftirfarandi reikning:
Botschaft von Island
COMMERZBANK BERLIN
BLZ 100 400 00
Kontonr.: 2661064
Upplýsingar um íslensk vegabréf er að finna á heimasíðunni www.vegabref.is/erlendis.
Nánari upplýsingar veitir íslenska sendiráðið í Berlín.


