Sendiráð Íslands - Ottawa, Kanada

360 Albert Street, Suite 710, Ottawa, ON K1R 7X7 - Sími: +1 (613) 482 1944



Sendiherra

Curriculum Vitae

Markús Örn Antonsson

Ambassador, Markús Örn Antonsson


Markús Örn Antonsson er fæddur 25. maí 1943. Foreldrar hans: Anton Björn Björnsson, íþróttakennari, f. 6. júní 1921 d. 26. nóvember 1943, og unnusta hans Bertha Karlsdóttir,  hárgreiðslukona, f. 16. maí 1921 d. 5. september 2000.

Maki: Steinunn Ármannsdóttir, MA, fyrrv. skólastjóri Álftamýrarskóla í Reykjavík, f. 20. febrúar 1946. Foreldrar Steinunnar: Sigrún Guðbrandsdóttir, kennari, og Ármann Halldórsson, námsstjóri. Steinunn og Markús eiga tvö börn og tvö barnabörn.

 

Náms- og starfsferill:

Markús Örn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1965. Inspector scholae í MR. Starfaði á skólaárum sem blaðamaður og ljósmyndari á  Morgunblaðinu.

Skiptinemi í Oregon í Bandaríkjunum 1961-1962 . Vann að gerð útvarpsþátta fyrir Ríkisútvarpið 1963 og 1964.

Hóf nám við lagadeild Háskóla Íslands haustið 1965 en tók til starfa hjá Sjónvarpinu í desember það ár og vann að undirbúningi að stofnun þess sem fréttamaður og dagskrárgerðarmaður.

Við þjálfun í fréttamennsku og dagskrárgerð fyrir sjónvarp hjá ITV í Bretlandi og SVT í Svíþjóð 1966.

Starfaði sem fréttamaður og dagskrárgerðarmaður við Sjónvarpið 1966-1970. Hefur annazt umsjón fjölda dagskrárþátta í sjónvarpi og útvarpi.

Kjörinn borgarfulltrúi í Reykjavík í maí 1970. Sat í borgarstjórn 1970-1985. Borgarráðsmaður 1973-1978 og 1982-1985. Forseti borgarstjórnar 1983-1985.

Sat í ýmsum ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar. Formaður æskulýðsráðs 1970-1974. Formaður félagsmálaráðs 1974-1978 og 1982-1985. Formaður fræðsluráðs 1982-1985. Formaður ferðamálanefndar 1982-1985.

Kynningarfulltrúi hjá Ferðaskrifstofu ríkisins 1971.

Ritstjóri tímaritsins Frjáls verzlun og fleiri tímarita hjá útgáfufélaginu Frjálst framtak hf. 1972-1983.

Átti sæti í útvarpsráði 1978-1985. Formaður ráðsins 1983-1985.

Gaf út eigið viðskiptatímarit á ensku, Modern Iceland, 1983-1985.

Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1985-1991.

Borgarstjóri í Reykjavík  1991-1994.

Vann að gerð sjónvarpskynningarmynda 1994-1995 á vegum Myndbæjar hf. og stofnaði útvarpsstöðina Sígilt FM 1994 einnig í samvinnu við það fyrirtæki.

Skipaður framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins-hljóðvarps í apríl 1995..

Skipaður útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1. janúar 1998 og á ný í ársbyrjun 2003.

Skipaður sendiherra frá 1. september 2005.

 

Félagsstörf og ýmis verkefni:

Formaður starfsmannafélags Sjónvarpsins 1966-1968.

Í stjórn Íslenzk-ameríska félagsins 1963-1966.

Í stjórn Framfarafélags Árbæjar- og Seláshverfis 1967-1970.

Formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna 1970.

Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1973-1977.

Í stjórn Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu. Formaður þess 1974.

Stofnfélagi í Rotarýklúbbnum Reykjavík-Breiðholt 1983-. Forseti hans 1996.

Fulltrúi Íslands í fjölmiðlanefnd Evrópuráðsins 1985-1991.

Í ráðgjafanefnd European Institute for the Media í Manchester og European Television and Film Forum 1987-1991.

Í stjórn menningarstofnunar höfuðborganna á Norðurlöndum í Hässelby 1991-1994.

Fulltrúi menntamálaráðuneytis í stjórn kvikmyndasjóðs Evrópuráðsins, Eurimages, frá 1994-1998.

Í fulltrúaráði og framkvæmdastjórn European Cultural Foundation í Amsterdam frá 1994.

Í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1995-1998.

Í úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs Íslands 1995-1997.

Einn af ritstjórum Rotary Norden, tímarits Rótarýhreyfingarinnar á Norðurlöndunum frá 1995-2006.

Formaður hátíðarnefndar vegna 200 ára afmælis Dómkirkjunnar í Reykjavík 1996.

Í stjórn Þjóðræknisfélags Íslendinga, Icelandic National League, er annast samskipti við Vestur-Íslendinga, 1998. Formaður félagsins frá 1999-2003.



 

 

Leturstærð: