Íslensk ljósmyndasýning opnuð í Jóhannesarborg
Sunnudaginn 8. júní 2008, opnaði Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Sendiherra Íslands sýningu á ljósmyndum Páls Stefánssonar í Gordart Galleríinu í Melville, Jóhannesarborg. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk sýning kemur til Suður Afríku.
Sýningin er á ferðalagi um heiminn, og er það styrkt af Menntamálaráðuneyti og Utanríkisráðuneyti Íslands. Sendiráð Íslands í Pretoría flutti sýninguna til Suður Afríku frá Belgíu þar sem hún hafði verið til sýningar í tengslum við menningaratburði í Brussel fyrr á árinu.
Páll Stefánsson segir sjálfur um sýninguna: “Af hverju þessar myndir? Fyrir mér skapa þær ákveðið skap. Sýna land í mótun. Land sem er fjölbreytt í ljósi og litum, nýtt land sem er ekki ólíkt þjóðinni sem býr þar í norðrinu rétt fyrir neðan Norðurheimsskautsbaug. Fjarlægt land sem er þó nær en mann grunar.”
Sýning verður í Gordart Galleríinu til 28. júní 2008. Gordart Galleríið er í Melville, Jóhannesarborg á 72 Avenue og er opið þriðjudaga – laugardaga frá klukkan 10:30 til 18:00.



