Íslandssögurnar fylla eyður bókasafns
Bókagjöf afhent í stærsta fjarnáms-háskóla Afríku.
Háskóli Suður Afríku (UNISA), stærsta fjarnámsmiðstöð Suður Afríku með yfir 20.000 nemendur bæði í Suður Afríku og á alþjóðavísu, tók á móti heildarsafni ensku þýðingarinnar á Íslandssögunum við hátíðlega athöfn þann 21. ágúst.
Sendiherrann Sigríður Dúna, sem afhenti bækurnar fyrir hönd Menntamálaráðherra Íslands, sagði það vera mikinn heiður að færa þessa gjöf og vonast hún til að afhendingin verði til þess að styrkja fremur menningarlegu tengslin á milli Íslands og Suður Afríku. Dr. Judy Henning háskólabókavörður UNISA sagði gjöfina fylla inn í eyður safnsins á íslenskum miðaldabókmenntum – eyðu sem hefði stækkað með árunum.
Prófessor Leonie Viljoen, fyrrum forstöðumaður enskudeildar háskólans, hafði frumkvæðið að því að biðja um nýjustu útgáfu Íslendingasagnanna. Sem styrkhafi á vegum Árnastofnunar sem hefur heimsótt Ísland, þá færði prófessor Viljoen athöfninni líf með því að lesa hluta af Sonartorreki, ljóði Egils Skallagrímssonar sem hann samdi eftir sonarmissi sinn. Starfsmaður sendiráðsins las kvæðin á forn-íslensku og prófessor Viljoen las þýðunguna sem kom úr bókagjöfinni sjálfri.



