Sendiráð Íslands - Pretoríu, Suður-Afríku

iParioli Office Park, Phase II, Block A2 - Sími: +27 (0)12 342 5885


Tungumál


Vegabréf og áritanir

Vegabréf

Umsókn um íslenskt vegabréf

Frá og með 17. maí 2006 er einungis hægt að sækja um íslensk vegabréf á Íslandi. Ræðismenn í umdæmi sendiráðsins taka ekki lengur við vegabréfsumsóknum. Ræðismenn geta hins vegar framlengt vegabréf um eitt ár frá þeim degi sem að vegabréfið rann út. Í brýnustu neyð geta ræðismenn gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt vegabréf í sendiráði á Norðurlöndum, Brettlandi, Frakklandi, Bandaríkjanna eða á Íslandi. Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.



Vegabréfsáritanir

Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til Suður-Afríku, hyggist þeir dvelja skemur en 90 daga í landinu.

Ef ferðamenn vilja dvelja lengur en 90 daga þurfa þeir að sækja um vegabréfsáritun. Mikilvægt er að hafa í huga að samkvæmt suður-afrískum innflytjendalögum þarf vegabréf að innihalda a.m.k. eina auða síðu þegar sótt er um áritun, annars gæti handhafa vegabréfs verið neitað um inngöngu í landið. Innflytjendayfirvöld leyfa ekki útgáfu neyðarvegabréfa á flugvöllum svo ekki er víst að sendiráðið geti aðstoðað í slíkum tilvikum. Munið að ef leiðin til Suður-Afríku liggur um önnur lönd gæti einnig þurft að gera ráð fyrir auðum síðum í vegabréfi fyrir þau lönd.



 

 

Leturstærð: