Embassy of Iceland - Washington D.C., USA

1156 15th Street N.W., Suite 1200, Washington DC 20005-1704, - Tel.: +1 (202) 265 6653


Tungumál


News and Events


althingi2

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga

Fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu

19.3.2007

Athygli er vakin á fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins (Nr. 39/2007):

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 12. maí 2007 hefst 17. mars og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum (frá 2. apríl). Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista: Kjörstaðir

Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu: www.kosning.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.



 

 

E-mail:


Fax:

(202) 265 6656


Opening Hours:

9:00 a.m. - 4:00 p.m.


Languages:

English, Icelandic, Danish, Swedish, Norwegian, German.


 


Leturstærð: