Embassy of Iceland - Washington D.C., USA

1156 15th Street N.W., Suite 1200, Washington DC 20005-1704, - Tel.: +1 (202) 265 6653


Tungumál


Um sendiráðið

Hlutverk og starfsemi sendiráðs Íslands í Washington D.C.

Meginhlutverk sendiráðs Íslands í Washington D.C. er að hlúa að og efla tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, og annarra umdæmisríkja sendiráðsins á sviði stjórnmála, varnar- og öryggismála, viðskipta, mennta- og menningarmála. Því hlutverki er einkum sinnt með eftirfarandi hætti:

- Að gera grein fyrir stefnu íslenskra stjórnvalda í helstu málaflokkum í bandaríska stjórnkerfinu og þannig auka skilning á og stuðning við íslenska hagsmuni. Samhliða því að fylgjast með og gera grein fyrir stefnu bandarískra stjórnvalda í helstu málaflokkum, og leggja mat á aðgerðir Bandaríkjastjórnar með tilliti til mögulegra áhrifa á íslenska hagsmuni.

- Að styðja við íslenskt atvinnulíf í viðskiptum við Bandaríkin, bæði með stuðningi við einstök fyrirtæki og atvinnugreinar, og með því að stuðla að gerð viðskiptasamninga á milli ríkjanna.

- Að koma íslenskri menningu á framfæri í Bandaríkjunum og efla menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna.

- Að aðstoða og standa vörð um réttindi íslenskra ríkisborgara í Bandaríkjunum og efla þjóðrækni meðal Íslendinga og afkomenda þeirra í Bandaríkjunum og umdæmisríkjum.

- Sendiráðið er einnig tengiliður við og tekur þátt í starfi NATO Allied Command Transformation í Norfolk. Sendiráðið tekur þátt í samráði sendiráða í Washington D.C. um málefni Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Frekari upplýsingar um starfsemi sendiráðsins veitir starfsfólk.

The Embassy of Iceland

Embassy of Iceland Washington D.C.
1156 15th Street N.W., Suite 1200
Washington DC 20005-1704
Tel.: 1-202-265-6653
Fax: 1-202-265-6656
E-Mail: icemb.wash@utn.stjr.is

Staðsetning sendiráðsins, kort



 

 


Leturstærð: