Aðalræðisskrifstofa Íslands - New York, USA

800 Third Avenue, 36th floor, New York NY 10022, - Sími: +1 (212) 593 2700


Tungumál


Vegabréf

Vegabréf

Umsóknir um íslensk vegabréf


Hægt er að sækja um vegabréf hjá aðalræðisskrifstofunni í New York.
Þegar sótt er um vegabréf fyrir einstaklinga sem eru 18 ára eða eldri þurfa þeir að koma í eigin persónu með eina passamynd í stærðinni 3,5x4,5 sm ásamt eldra vegabréf. Mikilvægt er að framvísa skilríkjum með mynd.


Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn þurfa báðir foreldrar (eða forsjáraðili ef barn lýtur forsjá eins aðila) og barnið að koma á umsóknarstað til að ganga frá umsókn um vegabréfið því skriflegt samþykki þeirra sem fara með forsjá barnsins þarf að undirrita í votta viðurvist. Hafa þarf með eina passamynd af barninu í stærðinni 3,5x4,5 sm ásamt frumriti eða staðfestu ljósriti af fæðingarvottorði barnsins þar sem nöfn beggja foreldra koma fram auk staðfestingar á að barnið hafi verið skráð hjá Hagstofu Íslands og hafi fengið íslenska kennitölu. Foreldrum eða forsjáraðilum er bent á að taka gild persónuskilríki með á umsóknarstað.


Ef umsækjandi óskar eftir að fá nýja vegabréfið sent heim bætist við póstkostnaður.


Greiða þarf fyrir vegabréf þegar sótt er um. Greiðslan þarf að vera í reiðufé eða ávísun sem gefin er út á Consulate General of Iceland in New York því ekki er hægt að taka við rafrænum greiðslum.

Vegabréf fyrir fullorðna, 18-66 ára, kosta $68 og $39 fyrir börn undir 18 ára aldri og eldri borgara.


Öll vegabréf eru gefin út af Útlendingastofnun á Íslandi. Afgreiðslutími er 3-4 vikur.


Allir umsækjendur um vegabréf, þ.m.t. börn, verða að koma á aðalræðisskrifstofuna og fylla út umsókn um vegabréf.  Aðalræðisskrifstofan sér um að koma umsóknum til Útlendingastofnunar.




 

 

Leturstærð: