Aðalræðisskrifstofa Íslands - New York, USA

800 Third Avenue, 36th floor, New York NY 10022, - Sími: +1 (212) 593 2700


Tungumál


Iceland Naturally

Iceland Naturally verkefnið

Til kynningarverkefnisins "Iceland Naturally" var stofnað á haustmánuðum 1999. Um er að ræða samstarfsverkefni ríkisstjórnar Íslands og íslenskra fyrirtækja sem starfa á Bandaríkjamarkaði og er tilgangur verkefnisins að efla ímynd Íslands meðal bandarískra neytenda. Aðildarfyrirtæki Iceland Naturally eru Icelandair, Samband of Iceland., Icelandic USA, Bændasamtök Ísland, Iceland Spring Water, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 66 Norður,Bláa Lónið og Glitnir.

Bandaríkin eru eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands. Árið 2004 voru alls fluttar út vörur fyrir um 18 milljarða þangað og það ár komu um 48.000 ferðamenn frá Bandaríkjunum til Íslands en ferðamönnum þaðan hefur fjölgað jafnt og þétt á seinustu árum.

Iceland Naturally verkefnið er rekið af aðalræðisskrifstofu Íslands og skrifstofu Ferðamálaráðs í New York. Framkvæmdastjórar verkefnisins eru Einar Gústafsson, framkvæmdastjóri Ferðamálaráðs í Bandaríkjunum og Hlynur Guðjónsson, viðskiptafulltrúi.

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að framlengja Iceland Naturally verkefnið út árið 2008 að tillögu aðildarfyrirtækjanna.

Stjórn Iceland Naturally:

Skúli Hlegason, formaður,Iceland Naturally
Guðmundur Steingrímsson,
Ævar Agnarsson,
Gréta Ingþórsdóttir,
Sigurgeir Þorgeirsson
Gunnar Már Sigurfinnsson,

 

 

Leturstærð: