Spurt og svarað
Yfirlit
- Hvernig sæki ég um íslenskt ökuskírteini?
- Ég finn ekki vegabréfið mitt. Hvað er til ráða?
- Hvernig skrái ég barn fætt í Bandaríkjunum sem íslenskan ríkisborgara?
- Hvar fæ ég "no objection letter"?
- Aðstoðar sendiráðið Íslendinga við að fá vegabréfsáritun til Bandaríkjanna?
- Er hægt að breyta ferðamannaáritun yfir í dvalarleyfi eftir að komið er til Bandaríkjanna á Visa Waiver Program?
- Getur sendiráðið aðstoðað við að fá græna kortið?
- Er hægt að hafa uppi á ættingja í Bandaríkjunum?
- Hvar finn ég upplýsingar um íslensk fyrirtæki í Bandaríkjunum?
- Hvar get ég keypt íslenskar vörur/matvæli?
Hér að neðan er að finna margvíslegar spurningar og svör sem tengjast þjónustu og aðstoð við Íslendinga.
Hvernig sæki ég um íslenskt ökuskírteini?
Hægt er að sækja um endurnýjun á íslensku ökuskírteini í sendiráðinu í Washington D.C.
Umsókninni þarf að fylgja svokallað kennispjald, sem útvega þarf frá Ríkislögreglustjóra.
Nauðsynlegt er að hringja í sendiráðið fyrirfram, gefa upp nafn og íslenska kennitölu og biðja sendiráðið að útvega kennispjaldið.
Umsóknin er fyllt út í sendiráðinu og þarf að fylgja henni ein passamynd.
Kostnaður: USD 56.00
Greiðslumáti: Reiðufé eða ávísun (stíluð á “Embassy of Iceland”).
Afgreiðslutími ökuskírteinis er um fimm vikur.
Lögreglustjórinn í Reykjavík sendir umsækjandanum fullbúið ökuskírteini í ábyrgðarpósti með póstkröfu vegna sendingarkostnaðar.
Ég finn ekki vegabréfið mitt. Hvað er til ráða?
Ef um er að ræða íslenskan ferðamann, sem hefur glatað vegabréfi sínu og stutt er í heimferð til Ísland, er viðkomandi bent á að hafa samband við sendiráðið sem kannar mál hans.
Ef um er að ræða íslenskan ríkisborgara, sem búsettur er í Bandaríkjunum, getur hann/hún snúið sér til sendiráðsins í Washington og sótt um nýtt vegabréf (sjá "umsókn um vegabréf"). Umsókn um vegabréf:
Hvernig skrái ég barn fætt í Bandaríkjunum sem íslenskan ríkisborgara?
Senda skal Hagstofu Íslands, þjóskrá, afrit af fæðingarvottorði barnsins og afrit af giftingarvottorði foreldra, þegar það á við.
Hvar fæ ég "no objection letter"?
Þeir sem hlotið hafa Fulbright-styrk frá bandarískum stjórnvöldum skuldbinda sig til að dvelja a.m.k. tvö ár á Íslandi að loknu námi. Unnt er að sækja um undanþágu frá þeirri reglu ef viðkomandi sér ekki fram á að geta starfað á Íslandi á sínu sérsviði og gefur sendiráðið út svokallað "no objection" í því tilliti.
Aðstoðar sendiráðið Íslendinga við að fá vegabréfsáritun til Bandaríkjanna?
Nei. Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi gefur út vegabréfsáritanir til íslenskra ríkisborgara í þeim tilvikum sem þeir þurfa á þeim að halda. Íslensk stjórnvöld hafa ekki tök á því að hafa áhrif á ákvarðanir bandarískra stjórnvalda þar að lútandi.
Er hægt að breyta ferðamannaáritun yfir í dvalarleyfi eftir að komið er til Bandaríkjanna á Visa Waiver Program?
Nei. Þvert á móti taka bandarísk stjórnvöld skýrt fram að ekki sé hægt að koma til á Bandaríkjanna á þeim forsendum að vera ferðamaður og óska svo eftir því að setjast að í landinu. Líta bandarísk stjórnvöld þá svo á að viðkomandi hafi komið til landsins á fölskum forsendum. Einstaka undantekningar eru á þessari reglu, s.s. í tilviki langveikra barna.
Getur sendiráðið aðstoðað við að fá græna kortið?
Nei. Bandarísk stjórnvöld ráða því algerlega.
Er hægt að hafa uppi á ættingja í Bandaríkjunum?
Sendiráðið hefur haft milligöngu um leit að fjölskyldumeðlimum Íslendinga sem búsettir eru í Bandaríkjunum. Þess ber þó að geta að þjóðskrá Bandaríkjanna er ófullkomin og óvíst er því um árangur. Í flestum tilvikum er almenn leit að ættingjum einkamál viðkomandi og því ekki í verkahring sendiráðsins.
Hvar finn ég upplýsingar um íslensk fyrirtæki í Bandaríkjunum?
Víða, t.d. á heimasíðu Aðalræðisskrifstofu Íslands í New hjá viðskiptafulltrúa sendiráðsins. Sendiráðið í Washington D.C. veitir einnig upplýsingar.
Hvar get ég keypt íslenskar vörur/matvæli?
Fjölmörg íslensk fyrirtæki eru með starfsemi og/eða umboðsfyrirtæki á Bandaríkjamarkaði. Upplýsingar um íslenskar vörur má m.a. finna á vef IcelandNaturally.

