Viðskiptaþjónusta
Markmið Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins (VUR) er að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja í útrás. Viðskiptafulltrúar VUR starfa innan flestra sendiráða Íslands, hafa greiðan aðgang að tengslaneti sendiráðanna og góða þekkingu á staðháttum. Geta þeir auðveldað aðgang að erlendum stjórnvöldum og opnað dyr að stærri viðskiptaaðilum. Viðskiptafulltrúinn vinnur fjölbreytt markaðstengd verkefni sem eru sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins.
Sendiráðið í Washington D.C.
Í samræmi við verkefnasamning sendiráðsins og VUR veitir sendiráðið þjónustu á borð við markaðsathuganir og leit að hugsanlegum samstarfsaðilum. Viðskiptafulltrúi sendiráðsins er Hlynur Guðjónsson og starfar hann á Aðalræðisskrifstofunni í New York. Hann svarar öllum almennum fyrirspurnum um viðskiptamál og tekur að sér sérhæfðari og viðameiri verkefni. Tengiliður VUR í sendiráðinu í Washington D.C. er Anna Katrín Vilhjálmsdóttir. Sendiráðið og viðskiptafulltrúinn í New York veita fjölbreytta þjónustu og má sem dæmi nefna:
-
Aðstoð við skipulagningu kynninga og ráðstefna
-
Afnot af fundarsal
-
Aðstoð við leit að umboðsaðilum
-
Skipulagning viðskiptaheimsókna
-
VUR á vettvangi – viðskiptafulltrúi fylgir fyrirtækjum á fund erlendra aðila
Hafðu óhikað samband og sjáðu hvort við getuðu orðið þér að liði.
Aðalræðisskrifstofan í New York
Viðskipti Íslands og Bandaríkjanna - Yfirlit

