Fastafulltrúi/ sendiherra
Fastafulltrúi/sendiherra
Curriculum Vitae
Hjálmar W. Hannesson
Fæddur í Reykjavík, 5. apríl 1946

Starfsferill:
|
2003- |
Fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Jafnframt sendiherra Íslands gagnvart Bahamaeyjum, Barbados, Dóminíska lýðveldinu, Grenada, Jamaíku og Kúbu. |
|
2001-2003 |
Sendiherra Íslands í Kanada (fyrsti íslenski sendiherrann með aðsetur í Ottawa), einnig sendiherra gagnvart Kólumbíu (agréé), Kosta Ríka (agréé), Níkaragva (agréé), Perú (agréé) og Venesúela (agréé). |
|
1999-2002 |
Sendiherra gagnvart Páfagarði (aðsetur í Reykjavík og Ottawa). |
|
1998-2001 |
Skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, jafnframt (1999-2001) staðgengill ráðuneytisstjóra. |
|
1995-1998 |
Sendiherra Íslands gagnvart Kína (fyrsti íslenski sendiherrann með aðsetur í Peking), jafnframt sendiherra gagnvart Japan, Kóreu, Víetnam, Indónesíu og Tælandi. |
|
1989-1995 |
Sendiherra Íslands í Þýskalandi, jafnframt sendiherra Íslands gagnvart Austurríki, Sviss og Grikklandi með aðsetur í Bonn. Sendiherra Íslands gagnvart Alþýðulýðveldinu Þýskalandi 23. ágúst 1990 – 3. október 1990, gagnvart Ungverjalandi frá september 1990 og Liechtenstein frá júní 1992. Formaður sendinefndar Íslands á fundi ÖSE í Vín 1994-1995. Formaður sendinefndar Íslands á ráðstefnu RÖSE um efnahagslega samvinnu í Evrópu, í Bonn 1990. |
|
1989-1990 |
Formaður sendinefndar Íslands í viðræðunum um traustvekjandi aðgerðir á hernaðarsviði (CSBM’s) og í viðræðunum um takmörkun hefðbundins vopnabúnaðar í Evrópu (CFE). |
|
1988 |
Aukaallsherjarþing Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmál. |
|
1988-1989 |
Sendiherra í málefnum RÖSE, afvopnunarmálum og takmörkun vígbúnaðar. |
|
1986-1989 |
Formaður sendinefndar Íslands á þriðja framhaldsfundi RÖSE í Vín (með aðsetur á Íslandi). |
|
1985-1988 |
Sendifulltrúi í utanríkisráðuneytinu. |
|
1984-1985 |
Sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu. |
|
1980-1984 |
Sendiráðsritari og síðar sendiráðunautur við sendiráð Íslands í Stokkhólmi. |
|
1977-1978 |
Í sendinefnd Íslands á fyrsta framhaldsfundi RÖSE í Belgrad og meðlimur í eða formaður sendinefnda RÖSE í Valletta, Helsinki, Stokkhólmi, Ottawa, Búdapest og Bern. |
|
1977-1980 |
Sendiráðsritari í fastanefnd Íslands hjá NATO/ sendiráði Íslands í Brussel. |
|
1976 |
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. |
|
1976-1977 |
Sendiráðsritari í utanríkisráðuneytinu. |
|
1969-1976 |
Kennari við K.Í. 1969-71, M.R. 1969-1976 (skipaður 1971) og aðjúnkt við H.Í. 1971-1973. |
Menntun:
|
1969 |
MA í stjórnmálafræði frá ríkisháskóla Norður-Karólínu í Chapel Hill. |
|
1968 |
BA í stjórnmálafræði frá ríkisháskóla Norður-Karólínu í Chapel Hill. |
|
1966 |
Kennari frá K.Í. |
Ritstörf:
Kennslubókin Íslenska ríkið, 1977 og 1982. Tók saman margháttað kennsluefni í þjóðfélagsfræðum í M.R., m.a. bækling um S.þ. Þýddi kennslubókina Félagsfræði eftir W. Aubert úr norsku, ásamt Gunnari Frímannssyni, 1972. Skrifaði ýmsar greinar 1969-1976, svo sem “The Anglo-Icelandic Fisheries Dispute” með Ron Barston fyrir tímaritið International Relations 1974.
Viðurkenningar:
Ýmsar erlendar orður og riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1981.
Hjálmar kvæntist Önnu Birgis 1966. Þau eiga tvo syni, eina dóttur og fjögur barnabörn.

