Fastanefnd Íslands hjá S.þ. - New York

800 Third Avenue, 36th floor, New York NY 10022 - Sími: +1 (212) 593 2700


Tungumál


Starfsfólk

Starfsfólk

Hjálmar W. Hannesson, sendiherra, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (2003)

Harald Aspelund, varafastafulltrúi og staðgengill fastafulltrúa (2004)

Emil Breki Hreggviðsson, sendiráðunautur (2005)

Matthías Geir Pálsson, sendiráðunautur (2005)

Anna Hjartardóttir, sendiráðsritari (2007)

María Mjöll Jónsdóttir, sendiráðsfulltrúi (2007)

Petrína Bachmann, sendiráðsfulltrúi (2004)

Arndís D. Arnardóttir, ritari (2003)

Ágúst Flygenring, starfsnemi

Herculano Sabas, bílstjóri



Fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum er Hjálmar W. Hannesson, sendiherra (2003). Hann veitir fastanefndinni forstöðu, en er jafnframt sendiherra Íslands gagnvart sjö ríkjum í Karíbahafi.

Varafastafulltrúi og staðgengill fastafulltrúa er Harald Aspelund, sendifulltrúi (2004). Hann á sæti í 2. nefnd allsherjarþingsins, sem fjallar um efnahags-, þróunar og umhverfismál, auk þess sem hann starfar sérstaklega að málum sem lúta að endurskipulagningu Sameinuðu þjóðanna. Þá er hann jafnframt fulltrúi í Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna, ECOSOC, og nefnd um sjálfbæra þróun (CSD).

Emil Breki Hreggviðsson, sendiráðunautur (2005), á sæti í 3. nefnd allsherjarþingsins, sem fer með félags- og mannréttindamál, sem og 4. nefnd allsherjarþingsins, sem fer með sérstök pólitísk mál og nýlendumál. Hann er jafnframt fulltrúi í Efnahags- og félagsráði Sameinuðu þjóðanna, ECOSOC, og situr í upplýsinganefnd SÞ, en Ísland tók sæti í henni á árinu 2005.

Matthías Geir Pálsson, sendiráðunautur (2005), á sæti í 1. nefnd allsherjarþingsins, sem fjallar um öryggis- og afvopnunarmál og 6. nefnd, þjóðréttarmálanefnd. Hann sinnir auk þess hafréttarmálum og alþjóðlegum dómstólum.

Anna Hjartardóttir, sendiráðsritari (2007), situr í 5. nefnd, sem er fjárhags- og stjórnsýslunefnd Sameinuðu þjóðanna og heldur utan um framlög Íslands til SÞ. Hún sinnir jafnframt málefnum þróunaráætlunar SÞ (UNDP), mannfjöldasjóðs SÞ (UNFPA) og þróunarsjóðs SÞ fyrir konur (UNIFEM) auk almennra fyrirspurna til fastanefndarinnar.

Ofanskráðir stjórnarerindrekar sinna jafnframt sérstökum málum, hver um sig, sem heyra beint undir allsherjarþingið án þess að fá umfjöllun í einhverri hinna varanlegu nefnda þingsins.

María Mjöll Jónsdóttir, sendiráðsfulltrúi (2007), sinnir framboði Íslands til öryggisráðsins, undirbúningi stjórnmálasambanda, ásamt því að aðstoða Emil Breka við verkefni öryggisráðsins.

Petrína Bachmann, sendiráðsfulltrúi (2004), annast fjárreiður fastanefndarinnar, umsjón með skráningu þingfulltrúa og útvegun aðfanga.

Arndís D. Arnardóttir, ritari (2003), sinnir skjalavörslu og móttöku fastanefndar.

Ágúst Flygenring, starfsnemi s.h. árs 2007, sinnir alhliða verkefnum vegna öryggisráðsframboðsins o.fl.

Herculano Sabas sinnir akstri og sendistörfum.

 

 

Leturstærð: