News and Events
SJÓÐUR EGILS SKALLAGRÍMSSONAR AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM
Sjóðurinn er styrktarsjóður í Bretlandi í vörslu sendiráðs Íslands og er styrktur af ýmsum íslenskum fyrirtækjum. Tilgangur sjóðsins er að efla íslenska menningu og listir á Bretlandseyjum en í því skyni veitir hann fjárstyrki. Fyrsti styrkurinn var veittur The Icelandic Take Away Theatre vegna sýningar þeirra á leikritinu "Sítrónusysturnar" á Edinborgarhátíðinni (fringe) 1997 og síðan þá hafa verið veittir fjölmargir styrkir í ýmiss verkefni.
Styrkveiting fer fram tvisvar á ári í maí og nóvember. Styrkir eru almennt veittir á grundvelli listræns gildis og með hliðsjón af fjárþörf. Umsóknir þurfa að berast sendiráðinu fyrir 1. nóvember. Styrkþegar þurfa að skila stuttri greinargerð þegar verkefninu er lokið.


