Sendiherra
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
F. 20. okt. 1942 í Kaupmannahöfn.

Foreldrar: Gunnlaugur Pétursson, sendiráðunautur, fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu og síðar borgarritari í Reykjavík og Kristín Vilhelmsdóttir Bernhöft, húsfreyja.
Stúdentspróf frá M.R. 1962. Lögfræðipróf frá H.Í. 1970.
Þingfréttaritari Morgunblaðsins 1963-64. Fulltrúi hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar 1964-1966. Staðgengill skrifstofustjóra borgarverkfræðingsins í Reykjavík 1966. Fulltrúi í utanríkisráðuneytinu frá 1. júní 1970, skipaður fulltrúi 1971. Sendiráðsritari í París frá 1971 og jafnframt varafastafulltrúi Íslands hjá OECD -Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunin og UNESCO – Menningarmálastofnun S.Þ. Settur deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu frá 1974, skipaður deildarstjóri 1976. Sendiráðunautur í Washington frá 1978. Skipaður sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni frá 1980. Deildarstjóri varnarmáladeildar utanríkisráðuneytisins frá 1983. Skipaður sendiherra í utanríkisþjónustunni frá apríl 1985, gegndi jafnframt starfi skrifstofustjóra varnarmálasksrifstofunnar frá sama tíma. Fastafulltrúi Íslands hjá alþjóðastofnunum í Genf og Fríverslunarsamtökum Evrópu – EFTA frá júní 1987. Jafnframt sendiherra Íslands í Egyptalandi, Eþíópíu, Keníu og Tansaníu með aðsetur í Genf. Skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins frá júní 1989. Fastafulltrúi Íslands hjá NATO – Atlantshafsbandalaginu í Brussel frá 1990. Jafnframt fastafulltrúi Íslands hjá WEU – Vestur-Evrópusambandinu frá 1993. Sendiherra Íslands í París frá apríl 1994. Jafnframt sendiherra Íslands á Sáni, Portúgal, Grænhöfðaeyjum, Ítalíu og Andorra. Einnig fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, OECD, UNESCO og FAO – Matvæla- og landbúnaðarstofnun S.Þ. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins frá mars 1999 til nóvember 2002. Sendiherra Íslands í London frá janúar 2003. Jafnframt sendiherra Íslands í Grikklandi, Hollandi, Írlandi, Indlandi, Líbanon, Möltu, Nepal, Nígeríu og Maldavíeyjum. Einnig fastafulltrúi Íslands hjá IMO – Alþjóðasiglingamálastofnuninni.
Trúnaðarstörf:
Í íslensku UNESCO-nefndinni frá 1970-71, ritari íslensku FAO-nefndarinnar 1974-1978, ritari nefndar um samskipti Íslands og Vestur-Íslendinga frá 1974-1978. Í sendinefnd Íslands á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1970, 1971 og 2001. Formaður varnarmálanefndar frá ágúst 1983 til júní 1987. Formaður bygginganefndar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar frá ágúst 1983 til júní 1987. Formaður Ratsjárnefndar utanríkisráðuneytisins frá ágúst 1983 til júní 1987. Formaður samninganefndar íslenska ríkisins um verklegar framkvæmdir á varnarsvæðum 1984-1987. Í íslensku FAO-nefndinni frá 1999-2002. Fulltrúi Íslands í stjórn heimssýningarinnar EXPO 1998 í Lisabon. Fulltrúi Íslands í stjórn heimssýningarinnar EXPO 2000 í Hannover. Formaður framkvæmdanefndar Íslands í Expo 2000. Fulltrúi Íslands í stjórn heimssýningarráðsins Bureau International des Expositions 1999-2002. Í stjórn Hafréttarstofnunar Íslands frá 1999, formaður frá 2002. Formaður samráðsnefndar Útflutningsráðs 1999-2002. Prófdómari í þjóðarrétti við lagadeild Háskóla Íslands frá 1999.
Maki: Guðný Aðalsteinsdóttir


