Aðstoðarmál
Sendiráðið veitir Íslendingum sem eru búsettir í Bretlandi eða eru þar á ferðalagi aðstoð af ýmsu tagi. Sú aðstoð felst t.d. í útgáfu neyðarvegabréfa, leit að týndu fólki, aðstoð í sifjamálum, s.s. í hjónaskilnaðar, barnsfaðernis- eða meðlagsmálum, auk þess sem sendiráðið hefur milligöngu um að birta Íslendingum búsettum í Bretlandi stefnur og greiðsluáskoranir.
Þá aðstoðar sendiráðið Íslendinga sem eru í nauðum staddir af ýmsum ástæðum, s.s. vegna fjárhagsvandræða, veikinda, ölvunar eða fíkniefnanotkunar. Þá aðstoðar sendiráðið þá sem komast í kast við lögin og gista fangageymslur lögreglunnar og sendiráðsprestur sinnir auk þess sjúklingum sem koma í læknisaðgerðir til Bretlands.


