Sendiráð Íslands - London, Bretlandi

2A Hans Street, London SW1X 0JE, UK - Tel.: +44-20-7259-3999


Tungumál


Sendiráðsprestur

Íslenski presturinn í London hefur reglulega viðveru í íslenska sendiráðinu í London á almennum skrifstofutíma frá klukkan 09:30-16:00 daglega, nema á fimmtudögum. Prestur sinnir ýmsum verkefnum í sendiráðinu, er meðal annars ritari Sjóðs Egils Skallagrímssonar og annast aðstoð við Íslendinga sem eru í einhvers konar erfiðleikum. Prestur annast svo reglulegt helgihald í London, á Humbersvæðinu og í Edinborg.

Hægt er hafa samband við prestinn með því að hringja í sendiráðið í síma 00 44 (0) 2072 593 999 eða senda tölvupóst chaplain@mfa.is