Sjóður Egils Skallagrímssonar
Sjóður Egils Skallagrímssonar er styrktarsjóður í Bretlandi í vörslu sendiráðs Íslands. Tilgangur sjóðsins er að efla íslenska menningu og listir á Bretlandseyjum en í því skyni veitir hann fjárstyrki. Fyrsti styrkurinn var veittur The Icelandic Take Away Theatre vegna sýningar þeirra á leikritinu "Sítrónusysturnar" á Edinborgarhátíðinni (fringe) 1997.
Styrkveiting fer fram tvisvar á ári í maí og nóvember. Styrkir eru almennt veittir á grundvelli listræns gildis og með hliðsjón af fjárþörf. Umsóknir þurfa að berast sendiráðinu fyrir 1. maí eða 1. nóvember. Styrkþegar þurfa að skila stuttri greinargerð þegar verkefninu er lokið.
Umsóknareyðublöð fást einnig hjá sendiráðinu:
2A Hans Street - Map
London SW1X 0JE
Sími: +44-20-7259-3999
Bréfasími: +44-20-7245-9649
Netfang: icemb.london@utn.stjr.is


