Íslenski söfnuðurinn
Sr. Sigurður Arnarson, sendiráðsprestur, hefur reglulega viðveru í sendiráðinu í London á almennum skrifstofutíma frá klukkan 09:30-16:00 daglega, nema á fimmtudögum.
Sendiráðspresturinn sinnir ýmsum verkefnum í sendiráðinu, m.a. er hann ritari Sjóðs Egils Skallagrímssonar og þá annast hann aðstoð við þá Íslendinga sem eru í einhvers konar erfiðleikum. Sendiráðsprestur annast svo reglulegt helgihald í London, á Humbersvæðinu og í Edinborg.
Hægt er hafa samband við prestinn með því að hringja í sendiráðið eða senda tölvupóst á netfangið: chaplain@mfa.is.


