Íslendingar í Bretlandi
Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda Íslendinga í Bretlandi, en talið er að þeir séu um 2-3 þúsund. Eru þeir bæði við nám og störf víðsvegar um landið, en þó lang flestir í London og nágrenni. Þá er all nokkur fjöldi Íslendinga búsettur á Humberside svæðinu, þ.e. við Hull og Grimsby, svo og í Skotlandi, einkum Glasgow og Edinborg.
Íslendingafélag er starfandi í London og þá er óformlegur félagsskapur Íslendinga starfandi í Hull og í Edinborg. Íslenskur söfnuður er jafnframt starfandi í London og heldur úti vefsíðu um starfsemi sína. Hér til hliðar á tenglum er að finna nánari upplýsingar um þessa starfsemi.
Hér að neðan má finna ýmsa gagnlega tengla um búsetu í Bretlandi og ferðir milli Íslands og Bretlands.


