Um sendiráðið
Til þjónustu reiðubúin
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi er opinber fulltrúi Íslands í Svíþjóð. Stjórnmálasamband milli Íslands og Svíþjóðar var stofnað 27. júlí 1940. Sendiráðið er líka sendiráð Íslands gagnvart Albaníu, Írak, Kúveit, Kýpur, Sádi-Arabíu, Serbíu og Sýrlandi. Sendiráðið er umfram allt þjónustustofnun.
Aðalverkefni sendiráðsins eru:
- Að fara með íslenska hagsmuni gagnvart sænskum stjórnvöldum og stjórnvöldum umdæmislandanna
- Að vera fulltrúi Íslands í þeim löndum sem nefnd voru
- Að annast þjónustu við Íslendinga í Svíþjóð og umdæmislöndum eftir því sem þörf krefur
- Að auka útflutning vöru og þjónustu til Svíþjóðar og stuðla almennt að aukanum viðskiptum landanna allra og Íslands
- Að auka menningarsamskipti landanna og að koma íslenskri menningu á framfæri í Svíþjóð og í umdæmislöndunum
- Að skipuleggja og viðhalda ræðismannatengslum við Íslands í löndunum
- Að miðla hvers konar upplýsingum um Ísland
Auk sendiherrans, Guðmundar Árna Stefánssonar, starfa að jafnaði þrír starfsmenn við sendiráðið. Þá eru þar stundum starfsnemar og stundum fólk í sérstökum verkefnum. Nú eru starfsmennirnir þessir:
Dóra Ásgeirsdóttir, sendiráðsfulltrúi
Elín Óskarsdóttir, ritari
Ása Sigríður Hallsdóttir, starfsnemi
Per Olof Olofson, annast þjónustuverkefni í sendiráðinu, húsvörslu og akstur
Ræðismenn í umdæmislöndum sendiráðsins eru 11 talsins, 7 í Svíþjóð, einn í Kýpur, einn í Albaníu, einn í Serbíu og einn í Sýrlandi.
Sendiráðið er til húsa að Kommendörsgatan 35 í Stokkhólmi.




