Umdæmislönd - Serbía
- Viðskipti og efnahagur
- Erlendar fjárfestingar og stofnun fyrirtækis
- Reikningsskil og endurskoðun
- Skattkerfi
- Atvinnumarkaður
Almennar upplýsingar
Júgóslavía var sambandsríki sem að samanstóð af lýðveldunum Serbíu og Svartfjallalandi. Frá og með febrúar 2003 hafa lýðveldin ákveðið að mynda laust ríkjasamband undir nafninu "The Union of Serbia and Montenegro". Þetta ríkjasamband mun verða við líði fram til 2005 þar til hvort land um sig verður með þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Ríkjasambandið hefur sameiginlegan forseta, Svetozar Marovic, og mun hafa sameiginlega varnmála- og utanríkismálastefnu. Löndin tvö munu samt sem áður hafa hvor sinn forseta.
- Stærð: 102.173 km2
- Íbúafjöldi: 10,63 milljónir (opinber spá (2002) ásamt Kosovo)
- Helstu borgir (2002): Belgrad (höfuðborg): 1.576.000, Novi Sad: 299.000, Nis: 251.000, Kragujevac:176.000, Podgorica (höfuðborg Svartfjallalands): 118.000 (1991), Pristina (höfuðborg Kosovo): 108.000 (1981)
- Tungumál: Serbó-króatíska, albanska og ungverska.
- Þjóðflokkar: Serbar 62,6%, Albanir 16,5%, Svartfellingar 5%, Ungverjar 3,3% og aðrir 12,6% (1991).
- Trúflokkar: Rétttrúaðir 65 %, Múslimar 19%, Rómversk-kaþólskir 4%, Mótmælendur 1% og aðrir 11%.
- Gjaldmiðill: Júgóslavneskur dínar (YUM), í Svartfjallalandi og í Kosovo er evran opinber gjaldmiðill síðan 1. janúar 2002.




