Sendiráð Íslands - Stokkhólmi, Svíþjóð

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Umdæmislönd - Svíþjóð

Almennar upplýsingar

Svíþjóð er stjórnað af minnihlutastjórn sósíaldemókrataflokksins (Social Democratic Party) en síðustu kosningar voru í september 2002. Stjórnin nýtur óformlegs stuðning Vinstriflokksins og Umhverfisflokksins til þess að ná þingmeirihluta. Sósíaldemókrataflokkurinn hefur setið í stjórn í Svíþjóð síðan 1930 með tveimur undantekningum (1976-1982 og 1991-1994) og hefur náð að viðhalda velferðarkerfi og háum sköttum í Svíþjóð. Forstætisráðherra og formaður flokksins er Göran Persson.

  • Stærð: 449.964 km2
  • Íbúafjöldi: 8.940.788 (2002)
  • Helstu borgir (2001): Stokkhólmur (höfuðborg): 758.148, Gautaborg: 474.921, Malmö: 265.481, Uppsala: 179.673, Linköping: 135.066, Västerås: 128.902, Örebro: 125.520, Norrköping: 123.303, Helsingborg: 119.406, Jönköping: 118.581.
  • Tungumál: Sænska. Finnska og samíska eru töluð af minnihlutahópum.
  • Þjóðflokkar: Svíar. Finnar og Samar eru í minnihlutahópi.
  • Trúflokkar: Lúterstrú 87% og aðrir 13%
  • Gjaldmiðill: Sænsk króna (SEK)
Sverige