Aðstoð við Íslendinga
Vegabréfsumsóknir
Hinn 1. júní 1999 tóku gildi ný lög um vegabréf nr. 136/1998 sem leggja grunn að útgáfu nýrra íslenskra vegabréfa.
Helstu nýmæli laganna eru eftirfarandi:
· Hætt er útgáfu vegabréfa í sendiráðum og fastanefndum erlendis. Ríkislöglegustjóri (Útlendingaeftirlit frá 1. október 1999) gefur út öll íslensk vegabréf.
Sendiráð, fastanefndir og ræðismenn Íslands taka þó við umsóknum um vegabréf, sbr. það sem segir hér að neðan.
· Þegar sótt er um vegabréf skal umsækjandi sanna deili á sér og gengið skal úr skugga um ríkisfang hans.
· Börn þurfa eigið vegabréf. Ekki hægt að skrá þau í vegabréf foreldra.
· Samþykki beggja foreldra þarf fyrir útgáfu vegabréfa fyrir börn, enda hafi báðir forræði.
· Umsækjendur fá vegabréf send í pósti, nema ósk sé um annað.
- Umsækjandi fær umsóknareyðublað hjá sendiráði eða ræðismanni Íslands. Einnig má nálgast það hér (Adobe-skjal).
- Umsækjandi skilar í eigin persónu umsókn til sendiráðs eða ræðismanns Íslands og þarf við það tækifæri að geta sannað á sér deili með því að framvísa persónuskilríki með mynd. Athygli er vakin á að reitinn "sýnishorn undirskriftar einstaklings" á umsóknareyðublaði skal fylla út í viðurvist fulltrúa sendiráðs eða ræðismanns. Sjá upplýsingar um ræðismenn í Svíþjóð.
- Ljósmynd sem fylgir umsókn á að vera 35x45 mm. Hún á að sýna allt andlit umsækjanda og líkjast honum vel. Aftaná mynd skal rita nafn umsækjanda. Mynd skal ekki líma á umsóknareyðublað.
- Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn undir 18 ára aldri skal fylgja umsókn skriflegt samþykki þess eða þeirra sem fara með forsjá barns. Þar til gert eyðublað fæst hjá sendiráði og ræðismönnum. Einnig má nálgast það hér (Adobe-skjal).
- Upplýsingar sem skráðar eru á umsóknareyðublað skulu vera í samræmi við upplýsingar í þjóðskrá. Ef einstaklingur hefur skipt um eftirnafn þarf fyrst að tilkynna það Þjóðskrá með því að senda þeim "personbevis" sem fæst hjá Personregistret þarsem fram kemur hið nýja eftirnafn.
- Gjald fyrir vegabréf þeirra sem eru 18-66 ára er SEK 650,- en SEK 240,- fyrir aðra.
Ef sækja á um vegabréf hjá ræðismanni þarf áður að greiða gjaldið inn á reikning sendiráðs hjá Handelsbanken, nr. 6112-577 172 468 (kontor 6112 Karlaplan) og framvísa kvittuninni til ræðismanns.
- Hafi eldra vegabréf glatast þarf greinargerð, e.t.v. lögregluskýrsla, þar að lútandi að fylgja umsókn.
- Afgreiðslutími vegabréfs getur numið allt að 3-4 vikum eftir að öll gögn hafa borist sendiráði eða ræðismanni.
- Hægt er að sækja um hraðafgreiðslu á vegabréfi og kostar það tvöfalt gjaldið (fullorðnir SEK 1.300,- börn og aðrir SEK 470,-). Reikna má með að sú afgreiðsla taki 7 virka daga.
- Neyðarvegabréf eru aðeins gefin út ef sannarlega er um neyðartilfelli að ræða. Gjald fyrir neyðarvegabréf er SEK 320,- og sækja verður um venjulegt vegabréf um leið. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út af sendiráðum. Einstaklingur verður að koma í eigin persónu og skila inn einni nýlegri mynd af sér og framvísa skilríki til að sanna á sér deili.
- Framlengja má vegabréfi einu sinni (6 mánuðir bætast við). Ekki er hægt að framlengja ef vegabréfið er þegar útrunnið og eru sendiráð þau einu sem framlengt geta vegabréfum. Gjald fyrir framlengingu er SEK 134,-.


