Aðstoð við Íslendinga
Vegabréfsumsóknir
Útgáfa íslenskra vegabréfa
Sendiráð Íslands taka við umsóknum um vegabréf, sbr. það sem segir hér að neðan. Ekki er lengur hægt að skila inn umsókn um vegabréf til ræðismanna.
· Börn þurfa eigið vegabréf. Ekki hægt að skrá þau í vegabréf foreldra.
· Samþykki beggja foreldra þarf fyrir útgáfu vegabréfa fyrir börn, enda hafi báðir forræði.
· Umsækjendur fá vegabréf send í pósti, nema ósk sé um annað.
- Umsækjandi fyllir ekki lengur út hefðbundið umsóknareyðublað er hann/hún sækir um vegabréf.. Tekið er við umsókninni í umsóknakerfið “ pappírslaust”. Sýna þarf skilríki með mynd þegar sótt er um.
- Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn undir 18 ára aldri skal fylgja umsókn skriflegt samþykki þess eða þeirra sem fara með forsjá barns. Þar til gert eyðublað fæst hjá sendiráði. Einnig má nálgast það hér (Adobe-skjal).
- Upplýsingar sem skráðar eru í vegabréfið eru í samræmi við upplýsingar í þjóðskrá á Íslandi. Ef einstaklingur hefur skipt um eftirnafn þarf fyrst að tilkynna það Þjóðskrá með því að senda þeim "personbevis" sem fæst hjá Personregistret þarsem fram kemur hið nýja eftirnafn.
- Gjald fyrir vegabréf þeirra sem eru 18-66 ára er SEK 650,- en SEK 240,- fyrir aðra. Greiða má með peningum eða lagt inn á reikning sendiráðs hjá Handelsbanken, nr. 6112-577 172 468 (kontor 6112 Karlaplan) og framvísa kvittuninni. Ekki er tekið við korti í sendiráði.
- Hafi eldra vegabréf glatast þarf greinargerð, e.t.v. lögregluskýrsla, þar að lútandi að fylgja umsókn.
- Afgreiðslutími vegabréfs
- Hægt er að sækja um hraðafgreiðslu á vegabréfi og kostar það tvöfalt gjaldið (fullorðnir SEK 1.300,- börn og aðrir SEK 470,-). Reikna má með að sú afgreiðsla taki 7 virka daga.
- Neyðarvegabréf eru aðeins gefin út ef sannarlega er um neyðartilfelli að ræða. Gjald fyrir neyðarvegabréf er SEK 320,- og sækja verður um venjulegt vegabréf um leið. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út af sendiráðum. Einstaklingur verður að koma í eigin persónu og skila inn einni nýlegri mynd af sér og framvísa skilríki til að sanna á sér deili.
- Framlengja má vegabréfi einu sinni (6-12 mánuðir bætast við) frá þeim degi sem það rann út. Gjald fyrir framlengingu er SEK 134,-. Hægt er að póstsenda vegabréfið til sendiráðs með ósk um framlengingu.


