Sendiráð Íslands - Stokkhólmi, Svíþjóð

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Aðstoð við Íslendinga

Móðurmálskennsla íslenskra barna

Börn af íslenskum uppruna sem búsett eru í Svíþjóð eiga rétt á móðurmálskennslu með því skilyrði að annað eða báðir foreldrar tali íslensku sem móðurmál, barnið hafi grunnþekkingu á íslensku og tali íslensku á heimili sínu, og að hæfur kennari sé til staðar. Móðurmálskennslan er greidd af sveitarfélaginu sem fjölskyldan býr í.

Þegar barn er komið á skólaaldur eiga foreldrar að fá heim umsóknareyðublað sem fylla skal út, ef óskað er eftir móðurmálskennslu. Eyðublaðinu er skilað til skólans sem kemur því til viðeigandi yfirvalda í sveitarfélaginu. Í Stokkhólmsléni er það Språkcentrum (www.spc.edu.stockholm.se) sem skipuleggur kennsluna, en í öðrum sveitarfélögum er það skrifstofa sveitarfélags sem gerir það.

Í sænskum lögum um grunnskóla (Grundskoleförordning – 1994:1194, 9 § - 14 §) má lesa nánar um rétt til móðurmálskennslu í grunnskóla (sjá www.notisum.se). Þar kemur fram í 2. mgr. 13. gr. að sveitarfélagi sé skylt að skipuleggja móðurmálskennslu ef sótt er um það fyrir minnst 5 nemendur í senn. Innan Stokkhólmsléns hefur verið horft framhjá þessari reglu, en sendiráðið hefur haft spurnir af því að sveitarfélög annars staðar í Svíþjóð hafa hafnað umsóknum um móðurmálskennslu m.a. vegna þess að þeim sé ekki skylt að verða við þeim nema áðurnefndu lágmarki sé náð.

Hellen Condit er íslenskukennari starfandi í Stokkhólmi. Ef þú hefur áhuga á móðurmálskennslu fyrir barn þitt en ekki fengið eyðublaðið eða svar frá Språkcentrum, geturðu haft samband beint við Hellen í síma 0735 5019538 eða með tölvupósti till hellencondit@hotmail.com

Rannveig Sigurðardóttir starfar sem einkakennari í íslensku, fyrir börn og fullorðna.  Hægt er að hafa samband við Rannveigu í s. 0707 646 980 eða rann.sig@gmail.com

Það er einnig velkomið að hafa samband við Íslendingafélagið í Stokkhólmi (upplysingar@islendingafelagid.se) eða sendiráðið til að fá upplýsingar um móðurmálskennsluna.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Opnunartímar:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, sænska, enska.