Sendiráđ Íslands - Stokkhólmi, Svíţjóđ

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Tvöfaldur ríkisborgararéttur

Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt


Dómsmálaráđuneytiđ vill vekja athygli á ţví ađ Alţingi hefur samţykkt breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952, sem heimilar íslenskum ríkisborgurum ađ halda íslensku ríkisfangi ţótt ţeir sćki um ríkisborgararétt í öđru ríki.

Lagabreytingin tekur gildi 1. júlí 2003.

Meginatriđi lagabreytingarinnar eru ţessi:

A. Íslenskur ríkisborgari heldur ríkisborgararétti sínum ţegar hann öđlast ríkisborgararétt í öđru ríki, enda heimili ţađ ríki tvöfaldan ríkisborgararétt. Hiđ sama gildir um ógift börn undir 18 ára aldri, sem viđkomandi hefur forsjá fyrir. Uppfylla ţarf skilyrđi 8. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt um búsetu eđa dvöl hér á landi fyrir 22 ára aldur. (Sjá liđ D)

B. Til ţess ađ geta öđlast ríkisborgararétt í ríki sem ekki heimilar tvöfaldan ríkisborgararétt ţarf íslenski ríkisborgarinn ađ sćkja um lausn frá íslenska ríkisborgararéttinum áđur en hann getur fengiđ ţann nýja stađfestan. Sótt er um lausn frá ríkisborgararétttinum hjá dóms- og kirkjumálaráđuneytinu. Beiđninni ţarf ađ fylgja stađfesting á ţví ađ nýi ríkisborgararétturinn taki gildi ţegar lausn er fengin hér á landi.

C. Íslenskur ríkisborgari sem tekiđ hefur ríkisborgararétt í öđru ríki og misst viđ ţađ íslenska ríkisborgararéttinn, án ţess ađ ţađ ríki hafi krafist ţess, getur óskađ eftir ađ fá íslenska ríkisborgararéttinn ađ nýju međ ţví ađ sćkja um ţađ til dóms- og kirkjumálaráđuneytisins. Umsćkjandi ţarf ađ hafa veriđ búsettur hér á landi eđa uppfylla skilyrđi um dvöl hér samkvćmt 8. gr. laganna. Ekki er unnt ađ endurveita ríkisborgararéttinn nema fyrir liggi stađfesting á ţví ađ umsćkjanda sé ţađ heimilt án ţess ađ missa núverandi ríkisborgararétt.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2007.

D. Óbreytt er ákvćđi 8. gr. ríkisborgararéttarlaganna um ađ íslenskur ríkisborgari sem fćddur er erlendis og ekki hefur átt hér lögheimili eđa dvaliđ hér í einhverju skyni er af megi ráđa ađ hann vilji vera íslenskur ríkisborgari missi íslenska ríkisborgararéttinn ţegar hann verđur 22 ára. Ekki missir hann ţó íslenska ríkisborgararéttinn ef hann hefur ekki annan ríkisborgararétt og yrđi ţannig ríkisborgararéttarlaus. Ţessum borgurum er ţví ekki heimilađur tvöfaldur ríkisborgararéttur.

Eyđublöđ vegna umsókna samkvćmt B- og C- liđum eru ađgengileg á heimasíđu dómsmálaráđuneytisins.
Lög um íslenskan ríkisborgararétt



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Opnunartímar:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, sćnska, enska.