Viðskiptanet
Yfirlit
Sænsk-íslenska viðskiptanetið var stofnað í Sendiráði Íslands 1. febrúar 2005. Í stjórn þess sitja Christer Villard formaður, forstjóri Kaupþing banka í Stokkhólmi, ritari er Óskar Kristjánsson forstjóri DK Business Solutions og gjaldkeri Nína Þóraronsdóttir, innkaupastjóri hjá Debenhams í Stokkhólmi.
Sænsk-íslenska viðskiptanetið er vettvangur fyrirtækja sem eiga viðskipti við Ísland eða hafa á huga á að koma á viðskiptatengslum við landið. Einnig er hlutverk þess að vekja athygli á því sem máli skiptir fyrir verslunartengsl milli landanna, m.a. með því að halda reglulega umræðufundi í Svíþjóð. Á heimasíðu sendiráðsins er að finna upplýsingar um fyrirtækin sem eiga aðild að netinu og eru þær ætlaðar til að auðvelda fyrirtækjum, sem áhuga hafa á viðskiptatengslum, að komast í samband við rétta aðila.
Ef þúhefur áhuga á að gerast aðili að viðskiptanetinu biðjum við þig vinsamlegast að senda eftirfarandi upplýsingar til sendiráðsins á icem.stock@utn.stjr.se:
- Nafn einstaklings / nafn fyrirtækis
- Starfssvið / Starfssvið fyrirtækis í Svíþjóð (og á Íslandi)
- Stutt lýsing á fyrirtækinu, t.d. stærð, velta, starfslið
- Heimasíða



