Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Auður Laxness og Svavar Gestsson
23. apríl 2005
Auður Laxness flytur þakkarorð ásamt Svavari Gestssyni sendiherra.

Hátíðardagskrá til heiðurs Halldóri Laxness

á afmælisdegi skáldsins 23. apríl s.l.

24.4.2005

Á þriðja hundrað manns kom á hátíðadagskrána í Nóbelshúsinu er því var fagnað að 50 ár eru liðin frá því að Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin. Haldið var upp á þessi tímamót á afmælisdegi skáldsins 23. apríl s.l. Heiðursgestur var Auður Laxness.

Dagskráin var fjölbreytt og þar komu fram fræðimenn og listamenn. Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra flutti ávarp, Þórarinn Eldjárn rithöfundur og stjórnarformaður Gljúfrasteins flutti erindi um Halldór Laxness og 20. öldina á Íslandi, Bo Ralph prófessor og meðlimur í Sænsku akademíunni flutti erindi um áhuga Augusts Strindbergs á Íslandi, Heimir Pálsson lektor í íslensku við Uppsalaháskóla flutti erindi um Halldór Laxness og August Strindberg,. Þá flutti Auður Laxness þakkarorð. Á milli erinda flutti leikkonan Bára Lyngdal Magnúsdóttir ljóð eftir skáldið í tali og tónum við undirleik Einars Sveinbjörnssonar. Í þakkarorðum sínum sagði Auður að það væri gaman að vera komin aftur til Stokkhólms fimmtíu árum síðar. Hún þakkaði þá virðingu og minningu Halldórs sem sýnd var með dagskránni. Á hátíðinni voru sýndar teikningar eftir myndlistarkonuna Siri Dekert, sem hún gerði við Ungfrúna góðu og húsið sem birtar voru sem eins konar framhaldssaga í tímaritinu Vi, mynd Birgittu Liljebladhs af Halldóri Laxness og mynd Lillemor Holmbergs af skáldinu.

Halldór Laxness er Nóbelsverðlaunahafi aprílmánaðar í Nóbelssafninu í Stokkhólmi. Sett var upp lítil sýning tileinkuð skáldinu þar sem m.a. má sjá nokkra muni frá Gljúfrasteini og margmiðlunarsýningu um ævi og verk hans.

Þeir sem stóðu að hátíðinni voru Nóbelsafnið í Stokkhólmi, safnið Gljúfrasteinn og sendiráð Íslands í Stokkhólmi. Þeir sem styrktu viðburðinn og sýninguna voru utanríkisráðuneytið, menntamálaráðuneytið, og bókaforlagið Edda.

Á myndinni má sjá Auði Laxness flytja þakkarorð ásamt Svavari Gestssyni sendiherra.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: