Nyheter och evenemang
Nóbelsverðlaun Halldórs Laxness - hátíð 23. apríl 2005
Nobelprisjubileum den 23:je april 2005
Halldór Laxness hlaut merkustu bókmenntaverðlaun heims fyrir 50 árum hér í Stokkhólmi. Við ætlum að halda upp á þessi tímamót á afmæli Halldórs 23. apríl nk. kl. 15:00 í Sænsku Akademíunni. Það væri gaman ef þú gætir litið við og samfagnað með okkur.
Samkoman verður í Börssalen, hjá Sænsku Akademíunni, Börshuset, Stortorget, Gamla Stan, Stokkhólmi. Þeir sem standa að þessu eru Nobelsafnið í Stokkhólmi, safnið Gljúfrasteinn á Íslandi og sendiráð Íslands í Stokkhólmi.
Dagskráin verður fjölbreytt:
1. Anders Bárány prófessor og varaforstöðumaður Nobelsafnsins setur samkomuna.
2. Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra flytur ávarp.
3. Leikkonan Bára Lyngdal Magnúsdóttir flytur ljóð eftir skáldið í tali og tónum við undirleik Einars Sveinbjörnssonar.
4. Þórarinn Eldjárn rithöfundur og stjórnarformaður Gljúfrasteins flytur erindi um Halldór Laxness og 20. öldina á Íslandi.
5. Bo Ralph prófessor og meðlimur í Sænsku Akademíunni flytur erindi um áhuga Augusts Stindbergs á Íslandi.
6. Heimir Pálsson lektor í íslensku við Uppsalaháskóla flytur erindi um Halldór Laxness og August Strindberg.
7. Auður Laxness flytur þakkarorð.
8. Svavar Gestsson sendiherra flytur lokaorð.
Þá verða sýndar teikningar eftir Siri Dekert, sem hún gerði við Ungfrúna góðu og húsið sem birtar voru sem eins konar framhaldssaga í tímaritinu Vi, mynd Birgittu Liljebladhs af Halldóri Laxness og mynd Lillemor Holmbergs af skáldinu.
Heiðursgestur verður ekkja skáldsins Auður Laxness en hún var í Stokkhólmi fyrir 50 árum að taka á móti verðlaununum með Halldóri Laxness.
Ennfremur verður lítil sýning í Nobelsafninu allan aprílmánuð tileinkuð skáldinu í tilefni þessara tímamóta. Sýndir verða persónulegir munir Halldórs Laxness úr eigu safnsins á Gljúfrasteini og sýnd verður margmiðlunarsýning um ævi hans og störf.
Miðaverð er SEK 50 og panta skal miða hjá Nobelssafninu í s. 08-534 818 18 /tölvupóstfang: bokning@nobel.se þar sem sætafjöldi er takmarkaður. Nobelsafnið leggur áherslu á að miðar verði sóttir tímanlega fyrir viðburðinn. Í leiðinni er hægt að nota tækifærið og skoða sýninguna á safninu.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðunum www.nobel.se og www.gljufrasteinn.is
För femtio år sedan mottog Halldór Laxness världens främsta litteraturpris här i Stockholm. Detta jubileum vill vi uppmärksamma på författarens födelsedag, lördagen den 23:je april i år kl. 15:00. Det kommer att äga rum i Svenska Akademiens egna lokaler och det skulle vara mycket trevligt om Du/Ni hade möjlighet att komma och dela vår glädje en stund.
Sammankomsten äger rum i Börssalen, hos Svenska Akademien, Börshuset, Stortorget, Gamla Stan, Stockholm. Arrangörer är Nobelmuseet i Stockholm, museet Gljúfrasteinn på Island och Islands ambassad i Stockholm.
Programmet kommer att bli mycket varierande:
1. Professor Anders Bárány, vice museichef för Nobelmuseet, hälsar alla välkomna.
2. StatssekreterarenSteingrímur Sigurgeirsson, isländska kultur och utbildningsministeriet håller ett kort anförande.
3. Skådespelerskan Bára Lyngdal Magnúsdóttir framför dikter av författaren, i både tal och toner, till ackompanjemang av Einar Sveinbjörnsson.
4. Författaren Þórarinn Eldjárn, ordförande i styrelsen för Gljúfrasteinn, håller föredrag om Halldór Laxness och nittonhundratalets Island.
5. Professor Bo Ralph, ledamot av Svenska Akademien, håller föredrag om August Strindbergs intresse för Island.
6. Lektorn i isländska vid Uppsala universitet, Heimir Pálsson, håller föredrag om Halldór Laxness och August Strindberg.
7. Auður Laxness framför sitt tack.
8. Ambassadör Svavar Gestsson avslutar programmet.
Även några av de teckningar som Siri Derkert gjorde, när hon illustrerade ”Den goda fröken och huset” som publicerades i form av en följetong i tidningen Vi, samt Birgitta Liljebladhs och Lillemor Holmbergs porträtt av författaren, kommer att visas.
Auður Laxness, författarens änka, är vår speciella hedersgäst. För femtio år sedan var hon här, tillsammans med sin make, när han tog emot Nobel priset.
Under hela april månad pågår en liten utställning, tillägnad författaren, i Nobelmuseet. Där visas en del av Halldór Laxness personliga föremål som inlånats från museet i Gljúfrasteinn. Där finns även ett multimediaprogam om hans liv och gärning.
Biljettpriset är SEK 50 och, eftersom antalet platser är begränsat, måste biljetterna beställas hos Nobelmuseet per telefon 08-534 818 18 eller e-postadressen: bokning@nobel.se. Det är bra om biljetterna hämtas i god tid före jubileet. När biljetterna hämtas får du samtidigt tillfälle att beskåda utställningen i Nobelmuseet.
Närmare information finns på nätet på adresserna www.nobel.se och www.gljufrasteinn.is



