Nyheter och evenemang
Innrás íslenskra knattspyrnukvenna til Svíþjóðar
Aldrei fyrr hafa eins margar íslenskar knattspyrnukonur spilað í sænsku úrvalsdeildinni eins og nú á nýhöfnu tímabili, en þær eru níu talsins.
Í fyrra spiluðu tvær íslenskar stúlkur í úrvalsdeildinni, þær Erla Steina Arnardóttir sem spilar með Krisianstads DFF og Dóra Stefánsdóttir sem spilar með LdB FC Malmö. Nú hafa sjö nýir leikmenn bæst í hópinn ásamt einum þjálfara.
Elísabet Gunnarsdóttir sem hefur þjálfað Val undanfarin ár með frábærum árangri, þjálfar nú úrvalsdeildarlið Kristianstad DFF. Með henni til Kristianstad komu leikmennirnir Guðný Björk Óðinsdóttir úr Val og Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR.
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir úr KR og Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður úr Val spila með Stokkhólmsliðinu Djurgården, Margrét Lára Viðarsdóttir, besta knattspyrnukona Íslands og fyrrum leikmaður Vals spilar með Linköping og Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir frá KR spila hjá KIF Örebro.
Auk þessara íslensku úrvalsdeildarleikmanna spilar Ásta Árnadóttir úr Val með fyrstudeildarliðinu Tyresö FF.
Það má því með sanni segja að hálft íslenska landsliðið spili með sænskum liðum en allar þessar stúlkur eru í landsliðshóp Íslands sem keppir á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Finnlandi síðar í sumar.
Það verður spennandi og skemmtilegt að fylgjast með þessum duglegu stúlkum og sjá þær þroskast á nýjum vettvangi. Þær eru glæsilegir fulltrúar fyrir íslenska þjóð í Svíaríki.


