Nyheter och evenemang
Síðustu forvöð ! Enn eru sæti laus á "Íslandsmótið" í golfi í Stokkhólmi 5. september
Síðustu forvöð ! Enn eru nokkur sæti laus ! Glæsileg verðlaun eru í boði; Fyrir fyrsta sæti er flugmiði til og frá Íslandi í boði Icelandair. Önnur verðlaun eru í boði sendiráðsins, konsúlsins, ferðaskrifstofunnar Islandia, verslunarinnar Norr og 3sagas.
Sendiráðið í Stokkhólmi, ferðaskrifstofan Islandia og aðalræðismaður Íslands í Malmö efna til golfkeppni fyrir Íslendinga og Íslandsvini í Svíþjóð á velli Kungsängens Golfklubb í Kungsängen rétt norðan við Stokkhólm föstudaginn 5.september kl 13.00.
Völlur Kungsängen Golfklubb er einn af bestu golfvöllum Svíþjóðar og eru margar stórmeistarakeppnir haldnar á þessum velli árlega. Nánari upplýsingar um völlin má sjá á heimasíðu hans. www.kungsangengc.se.
Fyrsti rástími er bókaður kl. 13.00 og svo er haldið áfram fram eftir degi.
Eftirfarandi er í boði;
a) SEK 450 á mann (næstum hálfvirði) fyrir vallargjald, kort og kúlukort á æfingarsvæðið.
b) SEK 550 á mann með sama og a) ásamt hádegisverði á veitingastað vallarins.
Síðasti skráningadagur er 15.ágúst og skal senda tölvupóst með upplýsingum til stosvar@mfa.is
Nánari upplýsingar veita Ásta asta@islandia.se og Ágúst agust.jonsson@telia.com
Mótshaldarar vonast til að sjá sem flesta og eins og í öllum alvöru keppnum eru glæsilegir vinningar í boði.


