Nyheter och evenemang
Vefföng Íslendinga í Svíþjóð
Vefföng Íslendinga í Svíþjóð.
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi vill miðla áhugaverðum upplýsingum til Íslendinga í Svíþjóð eins og kostur er og ástæða er til.
Bæði er heimasíða sendiráðsins góður kostur í þeim efnum og notuð sem slík. Eru félög Íslendinga hvött til þess að hafa samband við sendiráðið, ef óskað er eftir birtingu upplýsinga um samkomur og viðburði af hálfu þessara félaga.
Eins hefur sendiráðið boðið þeim Íslendingum sem leið hafa átt um skrifstofu sendiráðsins að skrá sig á sérstakan tölvupóstlista sendiráðsins. Sendiráðið sendir upplýsingar til viðtakenda á þessum lista annað slagið um stærri viðburði af hálfu sendiráðsins og félagasamtaka Íslendinga í Svíþjóð.
Þeir sem óska eftir því að fá sendar slíkar upplýsingar um tölvupóst frá sendiráðinu geta sent tölvupóstföng sín (e-mail adressur) til íslenska sendiráðsins hér (emb.stockholm@mfa.is).


