Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Árshátíð Íslendingafélagsins í Stokkhólmi

8. mars nk.

23.1.2008


Frá Íslendingafélaginu í Stokkhólmi:

Það er ekki seinna vænna en að huga að stórviðburði vorsins; Árshátíð hins eina sanna Íslendingafélags þann 8. mars nk.

Gleðin verður haldin í veislusal About Catering að Sandhamnsgatan 81 á Gärdet/Östermalm. Fyrir utan girnilegt hlaðborð verður boðið upp á þorramats-kíttling, svona fyrir þá sem þess sakna.

Til að halda uppi tónlistarlegri gleði höfum við fengið til liðs einhverja færustu plötusnúða landsins, tvíeykið "Gullfoss og Geysir”.  Þeir munu sjá til þess að engin fari heim fyrr en áætlað er, en opið verður til 03.00.  Barveitingar verða á góðu verði.

Veislustjóri verður fyrrverandi formaður Íslendingafélagsins, Ragga Eiríks, en hún kemur glóðheit frá Íslandinu góða vopnuð nýjasta slúðrinu og bröndurunum að heiman.  Aðrir skemmtikraftar, uppistandarar og ræðumenn munu koma árshátíðargestum skemmtilega á óvart.

Takið daginn frá og greiðið um leið félagsgjöld ársins!  Félagsmenn fá árshátíðarmiðann á hagstæðara verði. Greiðið ársgjald 2008, 150 SEK á fjölskyldu, inn á Plus Girot 40 39 35-0 og látið koma fram nafn, heimilisfang og tölvupóstfang.
 
Upplýsingar um hvar og hvenær hægt verður að nálgast miða má finna á heimasíðu félagsins www.islendingafelagid.se

 



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: