Nyheter och evenemang
Breyting á reglum um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna
Breyting á reglum um vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna.
Samkvæmt fréttatilkynningu sem utanríkisráðuneytið birti 30. apríl 2003 þurfa Íslendingar sem ferðast ætla til Bandaríkjanna eftir 1. október 2003 að sækja um vegabréfsáritun hjá sendiráði Bandaríkjanna ef ekki er ferðast með vegabréf sem gefin hafa verið út eftir 1. júní 1999 (síða þrjú er klædd hörðu plasti og "strikamerki").
ATH! Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur þessu verið frestað til 26. október 2004.
Útskýringarmynd af vegabréfunum má finna á heimasíðu Útlendingareftirlitsins.
Einnig má finna ítarlegar upplýsingar um vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna á heimasíðu sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík



