Nyheter och evenemang
Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks sýnd á Stockholms International Film Festival
Íslenska kvikmyndin "Mýrin" var sýnd fyrir fullu húsi á Stockholms International Film Festival alls fjórum sinum. Enski titill myndarinnar var notaður; "Jar City".
Leikstjóri myndarinnar Baltasar Kormákur var viðstaddur þriðju sýninguna, laugardaginn 24. nóvember, og sat fyrir svörum áhugasamra kvikmyndagesta að sýningu lokinni.
Til gamans má geta að myndin er framlag Íslands til komandi Óskarsverðlauna en tilkynnt verður um þau framlög sem tilnefnd verða í Hollywood 24. febrúar 2008.



