Nyheter och evenemang
Íslenska sveitin Bardukha spilar á Stallet 26. október kl. 21
Þjóðlagatónlist með baltnesku, arabísku og slavnesku tónkryddi...
Hljómsveitin Bardukha er skipuð Steingrími Guðmundssyni á slagverk, Ástvaldi Traustasyni á harmoniku, Hjörleifi Valssyni á fiðlu og Birgi Bragsyni á bassa.
Þeir munu spila á Stallet, Stallgatan 7, föstudaginn 26. október, dagskrá hefst kl. 19 og mun sveitin stíga á svið kl. 21. Miða má nálgast í forsölu hjá miðsölunni við Nybrokajen 11, eða klukkustund fyrir tónleikana á Stallet. Nánar um miðasölu má finna á heimasíðu Stallet.
Eftirfarandi lýsingu á tónlist sveitarinnar má finna á www.promo.is;
"Balzamersveitin Bardukha hefur lengi starfað saman og hafa meðlimir nánast verið þeir sömu frá upphafi. Balzamertónlistin, sem er einkenni hljómsveitarinnar, á rætur sínar að rekja til austur-evrópskrar, arabískrar og persneskrar þjóðlagahefðar auk sígaunatónlistar. Sveitin hefur haldið nokkra tónleika síðustu misserin og komið fram bæði í sjónvarpi og útvarpi. Túlkun meðlima á balzamertónlist vekur jafnan mikla athygli og er óhætt að segja að áheyrendur komi ekki samir út af tónleikum með Bardukha, í jákvæðustu merkingu þeirra orða."
Hljóðbrot og aðrar áhugaverðar upplýsingar má nálgast á http://www.myspace.com/bardukha



