Nyheter och evenemang
Åkersberga kammarkör syngur í Finnsku kirkjunni, 13. október kl. 16
Stjórnandi er Ingibjörg Guðlaugsdóttir
Åkersberga kammarkör mun syngja í Finnsku kirkjunni, Gamla Stan, laugardaginn 13. október n.k. kl. 16.
Kórinn tengist Íslandi á ýmsan hátt. Fyrst ber að nefna að kórstjórinn er Ingibjörg Guðlaugsdóttir, undirleik annast Brynja Guðmundsdóttir og síðast en ekki síst er Gunnar Benediktsson meðlimur í kórnum.
Kórinn er einnig að safna fyrir Íslandsferð í júní 2008.
Á tónleikunum verður flutt tónlist úr ýmsum áttum, allt frá Bach til negro spirituals, einkar fjölbreytt og áheyrilega dagskrá fyrir kór, básúnu og píanó.



