Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Starfsmannabreytingar í sendiráðinu

2.8.2007

Nú í byrjun ágúst urðu mannabreytingar í sendiráðinu. Helga Hauksdóttir sendiráðnautur lét af störfum og fór til starfa í utanríkisráðuneytinu. Þá hættir ennfremur Bergljót Halldórsdóttir ritari, en hún mun hefja nám í haust hér í Stokkhólmi. Sendiráðið þakkar þeim Helgu og Bergljótu fyrir samstarfið og óskar þeim og fjölskyldum þeirra velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Dóra Ásgeirsdóttir,sendiráðsfulltrúi, hefur hafið störf í sendiráðinu. Hún hefur starfað í utanríkisþjónustunni frá 1973; í ráðuneytinu og við sendiráð Íslands í Washington D.C:, Moskvu, Bonn, London, Peking og Vínarborg. Til Stokkhólms kemur Dóra frá utanríkisráðuneytinu, þar sem hún hefur starfað s.l. fjögur ár, nú síðast á skrifstofu ráðuneytisstjóra. Eiginmaður Dóru er Björn Ingi Jósefsson, hagfræðingur.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: