Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Kraftakeppni 2
Kraftakeppni 2
Benedikt Magnússon stóð sig vel í kúlusteinalyftunni Ljósmynd: Robert Petersson
« fyrri
1 2 3 4

Ísland var hér !!!

Vel heppnaður dagur með íslenskum áherslum í Stokkhólmi

11.6.2007

Hinn 5. júní sl. efndi sendiráðið í Stokkhólmi til menningarhátíðar í tilefni af landsleik Íslands og Svíþjóðar í knattspyrnu, sem fór fram í Stokkhólmi daginn eftir. Hátíðin, sem tókst í alla staði mjög vel, var haldin í nánu samstarfi við Glitni, Icelandair, Símann/Sirius IT, Baug, Átakssjóð Útflutningsráðs og VUR, og Sænsk-íslenska viðskiptaráðið. Hafist var handa við undirbúning hátíðarinnar í byrjun ársins með það að markmiði að vekja athygli á Íslandi og nýta þá fjölmiðlaathygli sem Ísland fengi í aðdraganda knattspyrnuleiksins.

Menningarhátíðin hófst með fundi í Strindbergsalen á Bernshótelinu fyrir sænska blaðamenn og sérfræðinga í fjármála- og fótboltaheiminum þar sem fjallað var um hvort smáar þjóðir ættu möguleika á að komast á toppinn með því að spila fótbolta og fjárfesta erlendis. Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, stýrði fundinum en framsögumenn voru Björn Richard Johansen, frá Glitni, Jóhanna Waagfjörð, framkvæmdastjóri Haga og stjórnarmaður í Sænsk-íslenska viðskiptaráðinu, Geir Þorsteinsson, forseti KSÍ og Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari með meiru.

Framsögumenn voru sammála um að smáar þjóðir ættu möguleika í harðri samkeppni á vettvangi viðskipta og knattspyrnu, þrátt fyrir ýmsar skorður sem ytri aðstæður setji þeim. Gerður var skemmtilegur samanburður á knattspyrnu og viðskiptum þar sem gildi að hafa skýr markmið og að allir leikmenn á vellinum og í viðskiptum geri sér grein fyrir hlutverki sínu til að markmiðinu verði náð. Þá kom fram að það skipti miklu máli að íslensk fyrirtæki styðji ungt og efnilegt fólk í viðskiptum, rétt eins og stutt er við bakið á efnilegu knattspyrnufólki.

Að loknum fundinum um knattspyrnu og peninga var haldin „létt“ aflraunakeppni milli Íslands og Svíþjóðar í blíðskaparveðri á Norrmalmstorgi í miðbæ Stokkhólms, sem raunar lauk með jafntefli. Um kvöldið voru svo haldnir stórtónleikar í China Teatern með Stuðmönnum, Björgvini Halldórssyni, KK og Pétri Ben. Fóstbræður hófu einnig upp sína raust með Björgvini á tónleikunum.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: