Nyheter och evenemang
Norðurlandakeppni í pípulögnum
Sigurvegari norðurlandakeppninnar Árni Már Heimisson (neðst til vinstri) ásamt hinum keppendunum.
Íslandsmeistari, Norðurlandameistari og nú bíður heimsmeistaramótið í Japan !
Árni Már Heimisson afreksmaður í pípulögnum.
Norðurlandakeppni í pípulögnum fór fram í Malmö þar sem keppendur lögðu skolplagnir, hita og sturtublöndunartæki ásamt gólfhita.
Íslenski keppandinn Árni Már Heimisson bar sigur úr býtum eftir víðamikið mat og aukamælingar hjá dómurunum. Í öðru sæti komu svo allir hinir keppendurnir (Svíþjóð, Danmörk, Finnland og Noregur).
Þeirra bíður nú heimsmeistaramótið World Skills Competition í Japan sem haldið verður í nóvember á þessu ári.



