Nyheter och evenemang
Íslenskir leikmenn ráða ríkjum í sænsku úrvaldsdeildinni í knattspyrnu
Hvorki fleiri né færri en 8 knattspyrnumenn og 1 þjálfari...
Ekki verður erfitt að rekast á íslenska knattspyrnumenn að störfum á vellinum í vor þegar sænska úrvalsdeildin hefst, því alls eru 8 leikmenn og 1 þjálfari á samningum hjá hinum ýmsu liðum í deildinni.
Þeir ku vera;
Ólafur Ingi Skúlason sem spilar með Helsingborg
Sölvi Geir Ottesen, Djurgården
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson, IFK Göteborg
Gunnar Þór Gunnarsson og Heiðar Geir Júlíusson, Hammarby
Jóhann B. Guðmundsson og Eyjólfur Héðinsson, GAIS
og síðast en ekki síst Sigurður Jónsson, þjálfari Djurgården.
Auk ofannefndu spila 4 leikmenn í 1. deildinni;
Stefán Þór Þórðarsson og Garðar Gunnlaugsson hjá Norrköping
Helgi Valur Daníelsson, Öster
Ari Freyr Skúlason, Häcken.
Ekki er hægt að neita fyrir að íslendingar eiga með afbrigðum marga hæfileikaríka knattspyrnumenn... allavega miðað við höfðatölu.



