Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Söngelskir íslendingar !

Upplýsingar frá íslenska kórnum í Stokkhólmi...

8.1.2007

Söngelskir íslendingar!

Íslenskur blandaður kór er starfandi í Stokkhólmi. Ykkur sem alltaf hefur dreymt um að syngja í kór, hafið endilega samband vid kórstjóra eða formann kórsins.

Okkur vantar bæði karlar og konur, unga sem aldna. Vana sem óvana!!

Æft er einu sinni í viku: miðvikudaga frá kl 18.00-20.00.

Adressan er Finska kyrkan, Slottsbacken 2 í Gamla stan, beint á móti konungshöllinni, gengið inn frá garðinum á bak við kirkjuna.

Nýr söngstjóri í ár er Ingibjörg Guðlaugsdóttir. Hún hefur stundað nám í básúnuleik og kennslu við tónlistarháskólann í Gautaborg og Konservatoriet í Kaupmannahöfn á árunum 1995-2000. Ingibjörg hefur komið fram sem einleikari og líka spilad med sinfoníuhljómsveitum bæði á Íslandi og í Svíþjóð.

Næst á döfinni hjá kórnum eru beinharðar æfingar fyrir kóramót íslenskra kóra sem haldið verður í Kaupmannahöfn 17 mars 2007.

Hikið ekki - velkomin á fyrstu æfingu kórsins 2007, 10 janúar kl 18.00

Nánari upplýsingar fáið þið hjá;

kórstjóra, Ingibjörgu Guðlaugsdóttur sími 073-956 43 95 eða 08-777 98 99, netfang: gudlaugsdottir@gmail.com

eða

formanni kórsins, Karin Hákonardóttir Byström sími 08-32 57 74, netfang: hakonardottir@hotmail.com



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: