Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

FÍNS
FÍNS
Nýkjörin stjórn FÍNS ásamt sendiherra og endurskoðanda. Frá vinstri: Gunnar Benediktsson, Dagný Benediktsdóttir, Vala Rún Gísladóttir, Emil Sigursveinsson, Einar Björgvin Eiðsson , Steinar Wang og Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra.

Félag Íslenskra námsmanna í Stokkhólmi (Fíns)

Stofnfundur var haldinn 7. desember

8.12.2006

FÍNS (Félag íslenskra námsmanna Stokkhólmi) er heitið á nýju félagi Íslendinga hér í Stokkhólmi. Stofnfundur var haldinn þann 7.desember og fór hann fram á heimili sendiherrahjóna á Strandvegi. Um 40 stúdentar mættu til fundarins, en auk þess voru viðstaddir stjórnarmenn úr Íslendingafélaginu og Samfundet Sverige - Island. Tilgangur hins nýja félags er að auka samheldni og félagslíf íslenskra námsmanna á Stokkhólmssvæðinu og vera málsvari þeirra, miðla hagnýtum upplýsingum til félagsmanna og sérstaklega nýrra stúdenta og vekja jákvæða athygli á Svíþjóð og Stokkhólmi sem valkosti í námi.

Á fundinum voru lög félagsins samþykkt og kosin fyrsta stjórn þess. Formaður var kjörin Einar Björgvin Eiðsson, upplýsingastjóri, Dagný Benediktsdóttir, ritari, Steinar Wang og gjaldkeri Vala Rún Gísladóttir. Varamaður í stjórn var kjörinn Emil Sigursveinsson og endurskoðandi utan félags, Gunnar Benediktsson,sem raunar var í stjórn "gamla" stúdentafélagsins i Stokkhólmi, sem var forveri Íslendingafélagsins sem starfar enn af miklum þrótti.

Eftir stjórnarkjör var ný heimasíða félagsins, www.namsmenn.se opnuð með táknrænum hætti af nýkjörnum formanni.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: