Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Móðurmálskennsla íslenskra barna

20.10.2006

Börn af íslenskum uppruna sem búsett eru í Svíþjóð eiga rétt á móðurmálskennslu með því skilyrði að annað eða báðir foreldrar tali íslensku sem móðurmál, barnið hafi grunnþekkingu á íslensku og tali íslensku á heimili sínu, og að hæfur kennari sé til staðar. Móðurmálskennslan er greidd af sveitarfélaginu sem fjölskyldan býr í.

Þegar barn er komið á skólaaldur eiga foreldrar að fá heim umsóknareyðublað sem fylla skal út, ef óskað er eftir móðurmálskennslu. Eyðublaðinu er skilað til skólans sem kemur því til viðeigandi yfirvalda í sveitarfélaginu. Í Stokkhólmsléni er það Språkcentrum (www.spc.edu.stockholm.se) sem skipuleggur kennsluna, en í öðrum sveitarfélögum er það skrifstofa sveitarfélags sem gerir það.

Í sænskum lögum um grunnskóla (Grundskoleförordning – 1994:1194, 9 § - 14 §) má lesa nánar um rétt til móðurmálskennslu í grunnskóla (sjá www.notisum.se). Þar kemur fram í 2. mgr. 13. gr. að sveitarfélagi sé skylt að skipuleggja móðurmálskennslu ef sótt er um það fyrir minnst 5 nemendur í senn. Innan Stokkhólmsléns hefur verið horft framhjá þessari reglu, en sendiráðið hefur haft spurnir af því að sveitarfélög annars staðar í Svíþjóð hafa hafnað umsóknum um móðurmálskennslu m.a. vegna þess að þeim sé ekki skylt að verða við þeim nema áðurnefndu lágmarki sé náð.

Rannveig Sigurðardóttir hefur um margra ára skeið kennt börnum íslensku í Stokkhólmi. Ef þú hefur áhuga á móðurmálskennslu fyrir barn þitt en ekki fengið eyðublaðið eða svar frá Språkcentrum, geturðu haft samband beint við Rannveigu í síma 08-948-085 eða með tölvupósti til rann.sig@gmail.com. Það er einnig velkomið að hafa samband við Íslendingafélagið í Stokkhólmi (upplysingar@islendingafelagid.se) eða sendiráðið til að fá upplýsingar um móðurmálskennsluna.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: