Nyheter och evenemang
Erna Ómarsdóttir dansar í Kulturhuset, Stokkhólmi
þriðjudaginn 24. október 2006
Þriðjudaginn 24. október nk. mun Erna Ómarsdóttir, dansari, sýna verk sitt “IBM 1401 – a user’s manual” í Kulturhuset í Stokkhólmi. Verkið hefur verið sýnt víða um heim og fengið góðar viðtökur. Var það m.a. sýnt á Íslandsdeginum í Stokkhólmi árið 2003.
“IMB 1401 – a user’s manual” byggir sögu eða endalokum fyrstu tölvunnar sem notuð var á Íslandi, IBM 1401. Tölvan var flutt til Íslands árið 1956 og þótt henni væri ekki ætlað að spila tónlist var mögulegt að láta hana læra lag með því að láta hana „hlusta“ á útvarp og eiga við minnisforrit hennar. Áður en hætt var að nota tölvuna árið 1971, var tekin upp á segulband tónlist ásamt hljóðum frá tölvunni og byggir tónlistin við dansverk Ernu á því. Jóhann Jóhannsson spilar undir verkinu.
Sýningin Ernu á verkinu í Kulturhuset nú er liður í alþjóðlegu sviðslistahátíðinni “Perfect Performance” sem fram fer í Stokkhólmi 20.-28. október nk.
“IMB 1401 – a user’s manual” verður sýnd 24. október kl. 19:00 í Kilen í Kulturhuset við Sergelstorg.
Nánari upplýsingar er að finna á
og



