Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Kvenfélag Íslands
Helga Hauksdóttir, sendiráðunautur, og Kristín Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Kvenfélagasambands Íslands.

Kvenfélagskonur frá Íslandi í heimsókn í sendiráðinu

10.8.2006

Síðastliðin mánudag kom í sendiráðið hópur hressra og skemmtilegra kvenna á vegum Kvenfélagasambands Íslands. Konurnar sem koma hvaðanæva að af landinu og eru flestar bændur að atvinnu, voru komnar til Svíþjóðar til að sækja árlega sumarráðstefnu Nordens Kvinnoförbund er haldin var í Sigtuna 3.-6. ágúst sl. Yfirskrift ráðstefnunnar var lífsgleði og átti það svo sannarlega vel við þennan hóp.

Helga Hauksdóttir, sendiráðunautur, tók á móti konunum og sagði þeim frá starfsemi sendiráðsins og samskiptum Íslands og Svíþjóðar á ýmsum sviðum. 



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: