Nyheter och evenemang
Unnur Birna heimsækir Stokkhólm
Ungfrú heimur, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, sótti Stokkhólm s.l. mánudag og þriðjudag. Hún fór víða og vakti mikla athygli sænskra fjölmiðla.
Síðastliðið mánudagskvöld krýndi Unnur Birna ungfrú Stokkhólm við mikla viðhöfn í Operukjallaranum.
Sendiherrafrúin, Jóna Dóra Karlsdóttir, hélt Unni Birnu móttöku í sendiherrabústaðnum, þar sem starfsfólk sendiráðsins, fulltrúar sænsku fegurðarkeppninnar, sænskir fjölmiðlar og nokkrir Íslendingar búsettir í Stokkhólmi, m.a. úr knattspyrnu- og tískuheimi, heiðruðu samkomuna með nærveru sinni.
Unnur Birna er sannarlega góður og glæsilegur sendiherra þjóðarinnar. Hún heillar alla með glaðlyndi sínu og ljúfmennsku, auk þess að vera auðvitað fallegasta kona heims!!



