Nyheter och evenemang
Hátíðarhöld á 17. júní
Þjóðhátíðardagskráin fór vel fram í blíðskaparveðri og hittust Íslendingar í Stokkhólmi og nutu dagsins saman. Sr. Ágúst Einarsson messaði í Finnsku Kirkjunni í Gamla Stan og íslenski sönghópurinn flutti ættjarðarlög með glæsibrag.

Ávarp sendiherra
Að því loknu héldu Stefán Vilbergsson, formaður Íslendingafélagsins og Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra ávörp.
Ávarp fjallkonu var vissulega á sínum stað, en í hlutverki fjallkonu í ár var Guðrún Þóroddsdóttir. Að þessu loknu var farið í skrúðgöngu og ferjan tekin yfir á Djurgården þar sem haldið var á Skansen, en þar gafst tækifæri til leikja fyrir yngri kynslóðina og notalegrar dagsstundar í góðum félagsskap fyrir þá sem eldri voru.
Í þjóðhátíðarskapi



