Nyheter och evenemang
www.hsi.is
Áfram Ísland!
Íslenska landsliðið vann glæstan sigur á Svíum á heimavelli þeirra Globen. Svíar höfðu forystu í upphafi leiks en Íslendingum tókst með þrautseigju að vinna upp forskotið. Eftir jafnan leikkafla tókst íslenska landsliðinu með einstakri seiglu að komast yfir þegar átta mínútur voru eftir af leiknum og urðu lyktir þær að Ísland lagði Svíþjóð í handknattleik með fjögurra marka mun; 28-34. Óskar sendiherra og starfsfólk sendiráðs landsliðinu innilega til hamingju með glæsilegan sigur.



